Ingunn S. Júlíusdóttir frá Vestmannaeyjum náði þeim merka áfanga að fagna 100 ára afmæli sínu hinn 24. október síðastliðinn.
Í stað afmælisgjafa mæltist hún til þess að afmælisgestir létu fé af hendi rakna til styrktar Krabbavörn í Vestmannaeyjum.
Alls söfnuðust 190 þúsund krónur sem Ester Ólafsdóttir, formaður Krabbavarnar, tók við úr hendi Ingunnar í gær. Ingunn þakkaði annars öllum fyrir að gleðja sig á aldarafmælinu, sérstaklega kór eldri borgara og Finni harmónikuleikara.