
Sportís hefur gert tveggja ára samning við Krabbameinsfélag Íslands þar sem ein tegund af Casall-íþróttatoppum er seld til styrktar félaginu. Renna 20% af sölu þess topps til félagsins.
Topparnir verða merktir Bleiku slaufunni. Þeir verða til sölu í öllum verslunum sem selja Casall-vörurnar og má þar nefna verslanir Lyfju, Útilífs og allar helstu íþróttaverslanir landsins.
"Við erum mjög stolt af því að vera með í Bleiku slaufunni og vera styrktaraðilar Krabbameinsfélags Íslands. Þannig getum við lagt hönd á plóg í baráttunni gegn krabbameinum sem kemur svo víða við," segir Kristinn Kristjánsson, sölustjóri hjá Sportís. Sportís hyggur á enn frekari stuðning við Krabbameinsfélagið.