10.11 2011

Aukinn afsláttur af eldsneyti og ríflegur styrkur til Krabbameinsfélagsins.

Orkan styrkir Krabbameinsfélag Íslands og býður ykkur að taka þátt.

Vinir Bleiku slaufunnar hjá Orkunni geta fengið betri kjör en almennt býðst og styrk Krabbameinsfélag Íslands í leiðinni með því að skrá sig í sérstakan afsláttarhóp Bleiku slaufunnar hjá Orkunni.
 

Hvað færð þú?

  • 10 kr. afsláttur á lítra í fyrstu 5 skiptin sem lykillinn er notaður
  • 5 kr. afsláttur hjá Shell af hverjum lítra (almennur afsláttur er 4 kr.)
  • 3 kr. afsláttur hjá Orkunni af hverjum lítra (almennur afsláttur er 2 kr.)
  • 10 kr. afsláttur af lítra á afmælisdegi korthafa/lykilhafa
  • 5 kr. afsláttur hjá Orkunni á OFURDÖGUM (12 sinnum á ári)
  • 15-20 % afsl af ýmsum vörum á bensínstöðvum Shell, sjá tilboð og samstarfsaðila á www.orkan.is

Hvað fær Krabbameinsfélagið?

  • 2.500 kr. fyrir hvern Orkulykil í hópnum sem náð hefur 300 lítra úttekt. (Sem eru u.þ.b. 5 úttektir og allar á 10 kr afslætti)
  • 1 kr. per líter sem keyptur er í gegnum Orkulykilinn
  • 2 kr. per líter í október (næstu árin)

Fáðu lykil merktan bleiku slaufunni og auktu enn á styrkinn

Þú getur fengið Orkulykil merktan bleiku slaufunni fyrir 500 kr. sem renna beint til Krabbameinsfélagsins. Orkan bætir við 1.000 kr. fyrir hvern slíkan lykil eða límmiða á lykil.
  

Hvernig sækir þú um?

Núverandi Orkulyklahafi:

  • Ef þú ert með Orkulykil núþegar getur þú sent tölvupóst á orkan@orkan.is og látið færa þig yfir á ofangreind kjör og byrjað að styrkja Bleiku slaufuna. 

Verðandi Orkulyklahafi:

Þú sækir um á https://www.orkan.is/Orkulykillinn/Umsokn
 
Til að fá ofangreind kjör verður þú að slá inn „Bleika - Orkan“ í reitinn Hópur á umsóknarsíðunni.
Orkan styður Krabbameinsfélagið

 
Til að fá ofangreind kjör og hafa Orkulykilinn þinn merktan með bleiku slaufunni verður þú að slá inn „Bleika/merki“ í reitinn Hópur á umsóknarsíðunni. Þá verður lykillinn sendur ókeypis heim til þín og 500 kr. krafa send í heimabankann fyrir merkingunni. Orkan bætir 1.000 kr styrk til Krabbameinsfélagsins fyrir sérhvern slíkan orkulykil. Þannig fær Krabbameinsfélagið 1.500 kr.
 
Orkan styður Krabbameinsfélagið 
 
 
 
 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit