Dæmi eru um að sjúklingar hafa þurft að greiða tæpar 200 þúsund krónur fyrir spítalameðferð við brjóstakrabbameini. Sé endurhæfing og lyfjakostnaður samkvæmt nýju frumvarpi tekinn með er kostnaður sjúklings nærri 370 þúsund krónur.
Krabbameinsfélag Íslands berst fyrir rétti sjúklinga en frumvarp liggur fyrir Alþingi sem kveður á um að krabbameinssjúkir þurfi nú að fara að greiða fyrir lyf sín upp að tæplega 65 þúsund krónur á tólf mánaða tímabili.
Fréttastofa Rúv tók viðtal við Gunnjónu Unu Guðmundsdóttur, félagsráðgjafa hjá Krabbameinsfélagi Íslands, sem birtist í kvöldfréttum sjónvarpsins mánudaginn 14.11.2011.