16.11 2011

Lampi til styrktar Krabbameinsfélaginu og Kastað til bata

ISO hönnun framleiðir lampa sem hægt er að breyta eftir vild eigandans. Þegar Switch Light lampi er keyptur renna 600 krónur til Kastað til bata samstarfsverkefnis Krabbameinsfélags Íslands, Samhjálp kvenna og styrktaraðila. Sölutímabilið er frá október 2011 til og með maí 2012.  

Að kasta til bata er endurhæfingarleið fyrir konur sem lokið hafa  meðferð við brjóstakrabbameini. Tvisvar hefur verið Kastað til bata, fyrst árið 2010 í Laxá í Laxárdal og 2011 var kastað í Sogið í Grímsnesi, í hvert sinn var 14 konum boðið í veiðiferð.  Með því að styrkja verkefnið gefst fleirum tækifærið á að bætast í hóp þeirra kvenna sem geta farið í Kastað til bata og gefst einnig tækifæri að efla þann núverandi hóp enn frekar. 

,, Auðvitað verður lífið aldrei eins, þetta er lífsreynsla. Ég tel að þetta verkefni geti hjálpað konum eins og mér að gleyma stað og stund og njóta augnabliksins‘‘.

Switch Light gefur þér kost á að hanna þinn eigin lampa með mynd eða hönnun. Lampinn er myndaður úr 6 spjöldum sem hver bera sýna eigin mynd og er því hægt að búa til myndarunu eða hafa hverja mynd alveg sér. Einstaklega persónulegur lampi sem getur veitt minningar og getur líka verið flott tækifærisgjöf. Sjá nánar á http://www.switchlight.is

Meira um Kastað til bata
Markmið Kastað til bata er að veita konum tækifæri til að sækja og gefa styrk til annarra kvenna með svipaða reynslu, æfa flugukast, gleyma sér í kyrrð og ró, njóta samvista við veiðifélaga og veiða, ef heppnin er með. Tekið er mið af líkamlegri getu þátttakenda og þaulreyndir  fluguveiðimenn veita leiðsögn. Veiðin snýst um að kasta, vona og landa. Auk þess að sameina líkamlega hreyfingu, kynnast kraftmiklum konum sem hafa áhuga á að prófa nýja hluti og síðast en ekki síst að finna þrótt, kraft og gleði í náttúrunni. 

Konur á öllum aldri sem eiga það eitt sameiginlegt að hafa greinst með brjóstakrabbamein upplifa að kastað til bata snýst um það að hafa gaman af lífinu, takast á við það og sigra sjálfa sig. 

,,Þetta var geggjað stuð!! Ég er algjörlega forfallin þetta er svo gaman og þið svo skemmtilegar!! - Þarf að segja meira?‘‘.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit