Plastprent lagði Krabbameinsfélaginu lið í október og seldi poka merktan Bleiku slaufunni til viðskiptavina sinna í október. Um var að ræða lítinn poka sem minnti fólk á átakið og seldust alls 20.000 pokar.
Plastprent styrkti Krabbameinsfélagið um 5 krónur á hvern seldan poka og afhenti Ragnheiði Haraldsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélagsins, bleika ávísun upp á 100.000 krónur. „Okkur fannst einstaklega gaman að taka þátt í verkefninu Bleiku slaufunni með Krabbameinsfélaginu og hugum á frekara samstarf í náinni framtíð“, sögðu fulltrúar Plastprent við afhendinguna.
Myndin frá vinstri: Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, Sigurður Þorvaldsson, sölustjóri rekstarvörusviðs, Sigurður Kr. Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs og Salvör Þóra Davíðsdóttir, markaðsfulltrúi hjá Plastprent.