09.12 2011

Barist gegn aukinni byrði á krabbameinssjúklinga

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands var í viðtali hjá Morgunútvarpinu á Rás 2 þann 8.12.2011. Þar var fjallað um fyrirhugaðar breytingar á frumvarpi til laga um breytingar á sjúkratryggingum og lyfjalögum og hversu illa þær komi sér fyrir krabbameinssjúklinga. Auknar byrðar verði lagðar á þennan hóp sem þarfnist stuðnings í veikindum sínum.

Velferðarnefnd Alþingis hefur borist umsögn frá Krabbameinsfélagi Íslands vegna frumvarps til laga um breytingar á lögum um sjúkratryggingar og lyfjalög. Krabbameinsfélag Íslands hefur áhyggjur af ýmsu sem þar er að finna en segir að þær feli líka í sér margvíslegar breytingar sem koma sjúklingum almennt vel.

Hægt er að hlusta á viðtalið hér.
 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit