Ó. Johnson & Kaaber tók þátt í árveknisátaki Krabbameinsfélagsins, Bleiku slaufunni í október og lét hluta af sölu allra Libresse-binda í október renna til Krabbameinsfélagsins.
Fyrirtækið lét útbúa sér sölustanda fyrir verkefnið sem voru staðsettir í mörgum verslunum. Alls styrkti Ó. Johnson & Kaaber Krabbameinsfélagið um 100.000 krónur og þakka aðstandendur félagsins þeim og viðskiptavinum þeirra innilega fyrir stuðninginn.