16.12 2011

Forever Living Products á Íslandi styrktu Krabbameinsfélag Íslands

Sjálfstæðir dreifingaraðilar Forever Living Products Íslandi ehf. tóku þátt í Bleika slaufu átaki Krabbameinsfélagsins. Á tímabilinu 14. október til 14. nóvember gáfu þau 30% af söluverði Aloe Vera drykkjanna, Aloe Vera Gel & Aloe Berry Nectar, Krabbameinsfélaginu.  

Í heild safnaðist með þessum hætti 103.806 krónur sem fulltrúar Forever Living Products Íslandi afhentu Krabbameinsfélaginu nýverið. 

Aðstandendur Krabbameinsfélagsins þakka Forever Living Products og öllum þeim er tóku þátt í átakinu.

Á myndinni frá vinstri: Halldóra Magnúsdóttir, svæðisstjóri Forever Living Products Íslandi,  Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, Jóna Björg Sætran og Lóa Guðrún Kristinsdóttir frá Forever Living Products Íslandi. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit