Í október og nóvember skörtuðu leigubílar Hreyfils/Bæjarleiða bleikum höttum. Af hverri pantaðri ferð með bleikum bíl fékk Krabbameinsfélagið 10 krónur auk þess sem leigubílstjórarnir voru sérlega duglegir við að selja Bleiku slaufuna.
Þetta er fimmta árið sem Bifreiðastöðin Hreyfill/Bæjarleiðir tekur þátt í Bleika slaufu átakinu með þessum hætti. Í ár seldu leigubílstjórarnir yfir 3.800 slaufur og fékk Krabbameinsfélagið að auki styrk upp á tæplega 1.200.000 krónur vegna ferðanna sem voru pantaðar hjá bifreiðastöðinni.
Starfsfólk Krabbameinsfélags Íslands þakkar öllum leigubílstjórunum og stjórnendum Bifreiðastöðvarinnar innilega fyrir.
Á myndinni tekur Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, við styrknum af Margréti Ástu Gunnarsdóttur leigubílstjóra.