Einar Farestveit & co hf. selur bleikar Kitchenaid-hrærivélar og Kitchenaid-blandara til stuðnings Krabbameinsfélagi Íslands allan ársins hring.
Samkvæmt samningi, sem Krabbameinsfélagið og Einar Farestveit & co hf hafa gert með sér, fær Krabbameinsfélagið 10.000 krónur af hverri bleikri Kitchenaid-hrærivél og 5.000 krónur af hverjum bleikum Kitchenaid-blandara og hafa safnast 195.000 krónur á árinu. „Við viljum leggja okkar að mörkum í baráttunni gegn krabbameini og finnst vel við hæfi að styðja hið frábæra og vel skipulagða starf sem Krabbameinsfélagið vinnur að málefnum krabbameina á Íslandi,“ sagði Hlöðver Þorsteinsson , framkvæmdastjóri, þegar hann afhenti styrkinn.
Einar Farestveit & co hf. hefur selt Kitchenaid hrærivélar á Íslandi í áratugi og hefur hrærivélin öðlast sérstöðu á heimilum fjölda landsmanna. Vélarnar eru fáanlegar í mörgum litum hjá Einari Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28.
Aðstandendur Krabbameinsfélagsins þakka Einari Farestsveit og viðskiptavinum þeirra innilega fyrir stuðninginn.