Í október stóð Krabbameinsfélag Íslands fyrir bleika mánuðinum í ellefta sinn og hvatti til umhugsunar og árvekni varðandi krabbamein hjá konum. Byggingar voru lýstar upp, hvunndagshetjum færð fyrsta slaufan, bleikur dagur haldinn um land allt og bleik kvennakvöld, fyrirlestrar voru haldnir í fyrirtækjum og margt fleira. Árviss fjáröflun Krabbameinsfélagsins – Bleika slaufan – stóð yfir dagana 1. til 15. október og seldust um 45.000 slaufur, sem hnýttar voru fyrir okkur í Suður-Afríku.
Á hverju ári greinast hátt á sjöunda hundrað konur með krabbamein og ein af hverjum þremur konum mun á lífsleiðinni kljást við krabbamein. Því er bleiki mánuðurinn svo mikilvægur. Hann minnir konur á að huga að heilsu sinni, þiggja boð um að mæta í leit að krabbameinum í leghálsi og brjóstum og gæta að heilbrigðum lífsstíl. Um leið og Krabbameinsfélagið beinir sjónum kvenna að þessum þáttum fer fram fjáröflun til að tryggja starfsemi félagsins rekstrarfé. Heildarhagnaður þessa söfnunarátaks var um 48 milljónir, sem fer framúr væntingum félagsins og leggur grunn að góðu starfi á næsta ári.
Krabbameinsfélags Íslands er þakklátt öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn og tryggðu þannig þennan góða árangur.