16.01 2012

Janúar átaksmánuður gegn leghálskrabbameini í Evrópu

Evrópusamtökin ECCA (European Cervical Cancer Association: http://www.ecca.info) berjast fyrir því að allar evrópskar konur hafi sama rétt til bestu fáanlegra forvarna gegn leghálskrabbameini.

Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur borist beiðni frá ECCA um aðstoð við að safna undirskriftum á Íslandi fyrir "STOP Cervical Cancer Petition" sem hvetur Evrópuþingið, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ríkisstjórnir allra landa í Evrópu til að veita öllum evrópskum konum þennan rétt.

Markmið ECCA er að ná einni milljón áskorana en þann fjölda þarf til að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins taki þetta mál á málefnaskrá sambandsins. Krabbameinsfélagið hvetur konur til að taka þátt í þessari áskorun með því að rita nafn sitt á
 

Einnig er unnt að sýna stuðning með því að festa kaup á Vísdómsperlunni sem er auðkennismerki átaksverkefnisins en perlan fæst keypt hjá Krabbameinsfélaginu að Skógarhlíð.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit