17.01 2012

Pylsuát eykur líkur á krabbameini

Niðurstöður sænskrar rannsóknar sem nýlega var birt í fagritinu British Journal of Cancer sýna að það að snæða reglulega pyslur, paté og aðrar unnar kjötvörur eykur töluvert líkur fólks á að fá krabbamein í brisi. 

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að fyrir hver 50 grömm af unnum kjötvörum sem fólk borðar á hverjum degi aukast líkurnar á krabbameini um 20%. Ein pylsa inniheldur um það bil 50 grömm af unnu kjöti og því má ætla að einstaklingur sem borðar fimm pylsur á dag tvöfaldi líkurnar á því að hann veikist af krabbameini í brisi.

Kjötið sjálft er þó ekki sökudólgurinn heldur þau bæti- og rotvarnarefni sem unnar kjötvörur innihalda, þá einkum nítrít. Nítrít er að finna í flestum unnum kjötvörum en þau lengja neyslutíma kjötsins og koma einnig í veg fyrir að Botulinum-eitrun myndist í því.



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit