Steinar Aðalbjörnsson var í opinskáu viðtali hjá Heimi og Kollu Í bítið á Bylgjunni í morgun, 17.1.2012. Þar sagði hann frá sinni reynslu er snýr að kynlífi í tengslum við krabbamein sem hann hefur barist við. Viðtalið var í tengslum við örráðstefnu Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Kynlíf og krabbamein, sem haldin verður fimmtudaginn 19. janúar í tengslum við verkefnið Kynlíf og krabbamein, samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Háskólasjúkrahúss. Þar mun hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten fjalla um það hvernig krabbameinsmeðferðhefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og áhrif þess á kynlíf. Hildur Björk Hilmarsdóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson sem bæði hafa greinst með krabbamein segja frá sinni reynslu. Fundarstjóri verður Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir.
Hlusta má á viðtalið við Steinar
hér.