23.01 2012

Við borðum minni fitu og sykur

Rannsóknir hafa sýnt að ýmsar fæðutegundur geta unnið gegn krabbameinin. Samkvæmt nýrri landskönnun á matarræði Íslendinga sem gerð var á vegum Embættis landlæknis, Matvælastofnunar og Rannsóknarstofu í næringarfræði er matarræði Íslendinga orðið heilsusamlegra nú en árið 2002. 

Að neðan er grein sem tekin var af Vef Morgunblaðins www.mbl.is 

Mataræði Íslendinga er heilsusamlegra nú, en árið 2002. Neysla á harðri fitu, sykruðum gosdrykkjum og viðbættum sykri hefur minnkað og meira er borðað af grænmeti, ávöxtum og grófu brauði. Enn er þó langt í land með að ráðleggingum um ákjósanlegt mataræði sé fylgt og neysla D-vítamíns er langt undir ráðleggingum.

Þetta kemur fram í nýrri landskönnun á mataræði Íslendinga sem  gerð var á vegum Embættis landlæknis, Matvælastofnunar og Rannsóknarstofu í næringarfræði. Kannaðar voru matarvenjur 1.312 manns á á aldrinum 18-80 ára.

Þar kemur m.a. fram að saltneysla hefur minnkað nokkuð, en er þó enn of mikil. Íslendingar neyta meira próteins en nágrannaþjóðir og hún er mest meðal þeirra sem drekka próteindrykki. Mjólkurneysla hefur hrapað töluvert frá árinu 2002, en neysla á fiski er áþekk.

54% aukning í neyslu ávaxta

Að sögn aðstandenda rannsóknarinnar er ánægjulegt að markmiðum um takmörkun á neyslu trans-fitusýra hafi verið náð, en þær hafa nánast horfið úr flestum íslenskum fæðutegundum, öðrum en þeim þar sem þær eru frá náttúrunnar hendi.

Ávaxtaneysla hefur aukist um 54% frá árinu 2002 og neysla á grænmeti hefur aukist um 19%. Þrátt fyrir þessa aukningu er neyslan enn langt undir markmiðum, sem eru um 400 grömm á grænmeti og ávöxtum á hverjum degi. Samtals er meðaltalsneyslan 239 grömm á dag.

Minna drukkið af sykruðu gosi

Neysla sykraðra gosdrykkja hefur minnkað, en meira er nú drukkið af sykurlausum gosdrykkjum. Ungt fólk sem drekkur sykrað gos oftar en tvisvar í viku fær mun meira af viðbættum sykri en ráðleggingar segja til um. Heildarneysla á gosdrykkjum er þó svipuð og hún mældist í síðustu könnun og er að meðaltali rúmt glas á dag.

Vatn er algengasti drykkurinn, en vatnsdrykkja samsvarar um þremur glösum á dag að meðaltali. Neysla á drykkjarmjólk hefur minnkað um þriðjung frá árinu 2002.

Neysla á grófu brauði og hafragraut hefur tvöfaldast frá árinu 2002, en minna er borðað af kökum og kexi. Þrátt fyrir það er neysla þess um tvöfalt meiri en á grófu brauði.


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit