Áætlaður kostnaður ríkisins vegna ómskoðana kvenna með PIP-brjóstapúða, leiðsagnar og upplýsingagjafar er um 9,8 milljónir króna samkvæmt samningi velferðarráðuneytisins og Krabbameinsfélags Íslands sem var undirritaður í gær.
Í samningnum er gert ráð fyrir að Leitarstöð Krabbameinsfélags Íslands annist ómskoðun allt að 440 kvenna og sjái jafnframt um að veita þeim upplýsingar og leiðsögn um næstu skref í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda sem kynnt var 10. janúar síðastliðinn.
Kostnaður vegna hverrar ómskoðunar nemur um 17.000 krónum og samtals verður kostnaður vegna ómskoðana því um 6,8 milljónir króna. Auk greiðslna fyrir ómskoðun fær Krabbameinsfélagið greidda fasta fjárhæð 1,5 milljónir króna fyrir að annast upplýsingagjöf og leiðsögn til þeirra kvenna sem þangað leita, auk 1,5 milljóna króna vegna undirbúnings, stjórnunar- og umsýslukostnaðar sem verkefnið hefur í för með sér.
Samkvæmt upphaflegri áætlun stjórnvalda var gert ráð fyrir að kostnaður vegna ómskoðana yrði um 6 milljónir króna. Nú liggur fyrir að kostnaður vegna verkefnisins í heild verður um 9,8 milljónir króna. Upphaflega var gert ráð fyrir að greina mögulegan leka í brjóstapúðum með einfaldri ómun á brjóstum. Í samráði við röntgenlækna, sem ómskoða munu konurnar, og samkvæmt faglegum leiðbeiningum embættis landlæknis var hins vegar ákveðið að óma brjóst og nærliggjandi svæði til að tryggja sem mest öryggi og nákvæmni við skoðun kvennanna.