26.01 2012

Húsfyllir á Kynlíf og krabbamein

Húsfyllir var á ráðstefnunni Kynlíf og krabbamein sem haldin var 19. janúar síðastliðinn í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Ráðstefnan var haldin í tengslum við verkefnið  Kynlíf og krabbamein, samstarfsverkefni Novartis, Sanofi og Landspítala Háskólasjúkrahúss. 

Hollenski læknirinn og kynfræðingurinn Woet Gianotten fjallaði um það hvernig krabbameinsmeðferð hefur áhrif á kynlíf og kyngetu og síðast en ekki síst mikilvægi þess að ræða á eðlilegan og opinskáan hátt um krabbamein og áhrif þess á kynlíf.  Hildur Björk Hilmarsdóttir og Steinar B. Aðalbjörnsson sem bæði hafa greinst með krabbamein sögðu frá sinni reynslu. Fundarstjóri var Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir.

Hægt er að horfa á myndbönd með erindunum hér









Skipta um leturstærð


Leit