Hið árlega kvennamót Bleika töltmótið fer fram í reiðhöllinni í Víðidal á konudaginn 19. febrúar nk. og hefst kl 12.30. Mótið er einungis ætlað konum 17 ára og eldri en keppt verður í byrjendaflokki, flokki minna vanra, meira vanra og opnum flokki.
Skráningagjöld eru frjálst framlag og renna óskert til Krabbameinsfélags Íslands til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini en þó að lámarki 3.000 kr.
Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameinum hjá konum Mótshaldarar hvetja bæði knapa og áhorfendur að klæðast bleiku í tilefni dagsins og sýna samstöðu.
Skráningu skal senda á netfangið
ddan@internet.is 13. febrúar frá 18-22 þar sem fram kemur IS númer hests, keppnisflokkur, kennitala knapa og símanúmer og upp á hvora hönd er riðið. Einnig er tekið á móti skráningu í gegnum síma: 894-3980 Auður, 893-3559 Drífa, 660-1750 Laufey og 863-4252 Jóhanna.