14.02 2012

Þorsteinn Guðmundsson leitar að konum í auglýsingu fyrir Mottumars

Leikarinn góðkunni Þorsteinn Guðmundsson er nú í óða önn að undirbúa kynningarátak Krabbameinsfélagsins, Mottumars. Til stendur að framleiða nýjar auglýsingar þar sem hann verður í hlutverki vinalega mannsins undir teppinu sem hvetur íslenska karlmenn til að læra að þekkja einkenni krabbameins og alla þjóðina til að heita á þá. 

Þorsteinn hefur undanfarin tvö ár lagt Krabbameinsfélaginu lið og biðlar nú til nokkurra íslenskra kvenna að gera slíkt hið sama. „Við leitum að þremur ungum, sportlegum konum, sem þurfa að túlka talsverða aðdáun í minn garð, svo þetta ætti ekki að verða mjög snúið hlutverk“, segir Þorsteinn. Áhugasamar skulu senda tölvupóst á Sigríði Hrönn sigga@sagafilm.is fyrir föstudaginn 17. febrúar og láta mynd fylgja. 

Allar nánari upplýsingar veitir:

Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, sími 540 1900
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs – og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, sími: 540 1900sími 693 0175
 
 



Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit