Krabbameinsfélagið leitar að mottumönnum til að leika í auglýsingu. Auglýsingin verður tekin upp á mánudaginn, 20. febrúar. Þetta er sjálfboðavinna og þurfa einstaklingarnir að vera með mottu og vera tilbúnir að vera allan daginn með okkur. Þetta verður skemmtilegur dagur þar sem leikarinn Þorsteinn Guðmundsson verður í farabroddi í hlutverki vinalega mannsins undir teppinu sem hvetur íslenska karlmenn til að læra að þekkja einkenni krabbameins og alla þjóðina til að heita á þá.
Áhugasamir sendi tölvupóst með mynd og fatastærð á Lailu, markaðsstjóra Krabbameinsfélagsins,
laila@krabb.is sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, sími 540 1900
Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs – og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins, sími: 540 1900 gsm: 693 0175