Á safnanótt 10. febrúar sl. var tilkynnt um úrslit í samkeppninni „Það er algjör vitleysa að reykja!“. Samkeppnin var haldin í tilefni af sýningunni „Þetta er allt sama tóbakið!“ sem stendur í Þjóðminjasafni Íslands. Sigurtillögurnar ásamt úrvali plakata sem bárust í keppnina má nú sjá á sýningu á Torgi við Kaffitár í Þjóðminjasafni Íslands.
Að samkeppninni stóðu auk Þjóðminjasafnsins, Krabbameinsfélagið, Embætti landlæknis og Prentsmiðjan Oddi. Öllum grunnskólanemendum í 7.-10. bekk stóð til boða að taka þátt í samkeppninni um hönnun og gerð á nýju tóbaksvarnarplakati og voru vegleg verðlaun í boði fyrir þrjú bestu plakötin. Tæplega 400 tillögur bárust í keppnina og var það mikið vandaverk fyrir dómnefndina að velja bestu plakötin.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og Geir Gunnlaugsson landlæknir afhentu verðlaunin á safnanótt.
Sigurvegari í keppninni var Jóna Kristín Erlendsdóttir og hlaut hún forláta iPad í verðlaun. Í öðru sæti var Karólína Rós Ólafsdóttir og í því þriðja Aron Freyr Kristjánsson. Hlutu þau bæði iPod. Allir sigurvegararnir fengu viðurkenningarskjal og eintak af ritinu Hlutavelta tímans: menningararfur á Þjóðminjasafni auk þess sem sigurplakatið verður prentað hjá Prentsmiðjunni Odda og mun það fara í dreifingu í grunnskóla og félagsmiðstöðvar.