Starfsmannastefna

Krabbameinsfélag Íslands samþykkti stefnumótun fyrir félagið og lýsingu á hlutverki þess á aðalfundi þann 8. maí 2010 (Stefnumótun Krabbameinsfélags Íslands fyrir tímabilið 2010-2014. Lifandi vinnuplagg!).

Starfsmannastefna Krabbameinsfélagsins byggir á ofangreindum gögnum auk laga félagsins, og þeim lögum og reglum sem við eiga og vitnað er til hér á eftir. Einnig skal hafa Siðareglur Krabbameinsfélagsins í huga.

Starfsmannastefnan tekur til allra starfsmanna sem ráðnir eru til starfa á vegum Krabbameinsfélagsins (þar með talið á vegum aðildarfélaganna) og til sjálfboðaliða sem starfa fyrir félagið eftir því sem átt getur við.

Markmið með starfsmannastefnunni er að tryggja að Krabbameinsfélagið hafi áfram á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki sem búi við ánægjulegt starfsumhverfi og hafi frumkvæði í starfi. Jafnframt er starfsmannastefnunni ætlað að stuðla að gagnkvæmum skilningi milli starfsmanna og vinnuveitanda og leiðbeina við lausn ágreiningsmála.

Starfsmannastefnuna má finna hér í heild sinni.









Skipta um leturstærð


Leit