Atburðir


mið 1.feb. 2012 - mið 29.feb. 2012

Dagskrá febrúarmánaðar

Dagskrá Ráðgjafarþjónustunnar

Opið að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 1. hæð, alla virka daga kl. 9-16. Sími 800 4040. Netföng  una@krabb.is og asdisk@krabb.is.  Hægt er að hafa samband við félagsráðgjafa í síma 540 1912 og hjúkrunarfræðing í síma 540 1916. Eða koma á staðinn. Öll þjónustan er að mestu án endurgjalds. Sjá nánar á www.krabb.is. Góð aðstaða fyrir fundi og námskeið og til að hittast yfir kaffibolla. Stuðningshóparnir halda flesta sína fundi í húsnæðinu og eru með viðveru og viðtalstíma þar.

 

Febrúar   2012

Mánudagar

kl.11:30-12:00 Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku.
kl. 14:45-15:15 Hópþjálfun í vatni fyrir einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein í sundlaug endurhæfingardeildar Landspítala Grensási.
kl. 20:00-21:00 Göngum saman. Gengið frá Fríkirkjunni við tjörnina í Reykjavík.

Þriðjudagar

kl. 15:00-16:30 Samhjálp kvenna. Viðtalstími, sími 540-1911 kl. 10:00-11:30
kl 14:00-16.00.
Hugarheimurinn - hugsanir – innri raddir Örnámskeið 3.skipti hefst 7. feb HAM-ÖRNÁMSKEIÐ í hugrænni atferlismeðferð – sjá nánar á www.krabb.is.
kl. 18:00-19:00 Athugið samvera fyrir ekkjur og ekkla annan þriðjudag í mánuði.

Miðvikudagar

kl. 11:30-12:00 Qi gong iðkun. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson. Boðið upp á hressingu á eftir.
kl. 14:45-15:15 Hópþjálfun í vatni fyrir einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein í sundlaug endurhæfingardeildar Landspítala Grensási.
Athugið hádegisfyrirlestra annan hvern miðvikudag í hádeginu, sjá að neðan.

Fimmtudagar

kl. 13:00-16:00  Bridge námskeið. Framhaldsnámskeið.
kl. 13:00-15:00 Styrkur. Viðtalstími, sími 896-5808.

Föstudagar

kl. 13:00-14:00 Fræðsla fyrir krabbameinsgreinda og  aðstandendur þeirra 7 fyrirlestrar í samstarfi við Landspítala Háskólasjúkrahús, vikulega.3. FEBRÚAR – 16. MARS -sjá að neðan.

Athugið alla virka daga er viðvera í Skógarhlíð. Hér að ofan eru fastir viðburðir. Annað er auglýst sérstaklega.
Viðtöl  og djúpslökun eru bókuð fyrirfram, sjá síma og netföng hér að ofan. Við hvetjum fólk að koma við og fá upplýsingar um það sem í boði er og skrá sig á póstlista www.krabb.is    

     

Stuðnings- og fræðslufundir í febrúar

Miðvikudagur 1. feb. kl. 17:00-18:00 Góðir hálsar: stuðningshópur um blöðruhálskirtilskrabbamein - Rabb.

Fimmtudagur  2. feb. 20:00-22:00 Stómasamtökin opið hús.

Föstudagur  3.feb. 13:00-14:00 Agnes Smáradóttir Sérfræðilæknir, LSH Að greinast með krabbamein.

Þriðjudagur 7.feb.  10:00-11:30 Örnámskeið Hugarheimurinn - hugsanir – innri raddir 3 skipti, hefst 7. feb.

Miðvikudagur 8. feb.  kl. 12:10-13:00   Tómstundir og gildi þeirra í daglegu lífi, Vanda Sigurgeirsdóttir kl. 17:00-18:00 Stuðningshópur um lungnakrabbamein opið hús.

Þriðjudagur 14.feb.   kl. 18.00-19.00 Samvera fyrir Ekkjur og Ekkla. Húsið opnar kl. 17:30. Kvíði, einmanaleiki, þunglyndi, Sr. Bragi Skúlason og Ásdís Karadóttir.
kl. 20:0-22:00 Styrkur: Guðrún Bergmann, hvernig má viðhalda góðri heilsu.

Miðvikudagur 22.feb.  12:10-13.00 Nýttu kraftinn

Fimmtudagur 23. feb. Kl. 16:30-18:00  Örráðstefna. Eru lögbundin réttindi krabbameinssjúklinga virt?
Frummælandi Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur og skrifstofustjóri hjá Velferðarráðuneytinu

Miðvikudagur 29. feb.  Kl. 17.00-18.00 Stuðningshópur kvenna með eggjastokkakrabbamein Rabbfundur

Föstudagar  3.,10.,17. og 24. Kl.13.00-14.00 Fræðsla fyrir krabbameinsgreinda og  aðstandendur þeirra .

Föstudagar - Alla föstudaga Kl 13:00-14:00 10. feb. Alís Inga Freygarðsdóttir  streita og slökun, 17 .feb. Margrét Bárðardóttir Veikindi og vellíðan, Frá streitu til sáttar, 24.feb   Helga Sigurðardóttir næring og krabbamein.

fös 3.feb. 2012 13:00 - fös 16.mar. 2012 14:00

FRÆÐSLA FYRIR KRABBAMEINSGREINDA OG AÐSTANDENDUR Í RÁÐGJAFARÞJÓNUSTUNNI KL. 13:00

FRÆÐSLA FYRIR KRABBAMEINSGREINDA
OG AÐSTANDENDUR ÞEIRRA
FEBRÚAR 2012

STAÐUR OG STUND:
Ráðgjafarþjónusta krabbameinsfélagsins
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Föstudaga kl. 13:00

3. febrúar 

Agnes Smáradóttir 
Sérfræðilæknir, LSH
Að greinast með krabbamein 
 
10. febrúar 

Alís Inga Freygarðsdóttir 
Iðjuþjálfi, LSH
Streita og slökun
     

17 .febrúar 

Margrét Bárðardóttir
Sálfræðingur, LSH
Veikindi og vellíðan,
Frá streitu til sáttar
  
24. Febrúar 

Helga Sigurðardóttir
Næringarráðgjafi, LSH
Næring og krabbamein

STAÐUR OG STUND:
Ráðgjafarþjónusta krabbameinsfélagsins
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Föstudaga kl. 13:00

2. mars

Guðný Steingrímsdóttir
Félagsráðgjafi, LSH
Í kjölfar greiningar; 
Réttindi, þjónusta og áhrif
 
9. mars   

Hannes Bjarni Hannesson
Sjúkraþjálfari, LSH
Þjálfun og hreyfing  
 

16. mars 

Þórunn K.Guðmundsdóttir
Klínískur lyfjafræðingur, LSH
Lyfin mín; almennar upplýsingar um lyf og lyfjanotkun

STAÐUR OG STUND:
Ráðgjafarþjónusta krabbameinsfélagsins
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík
Föstudaga kl. 13:00

þri 7.feb. 2012 - þri 21.feb. 2012

Örnámskeið Hugarheimurinn ~ hugsanir ~ innri raddir

 
Hugarheimurinn ~ hugsanir ~ innri raddir

Námskeiðið gefur þér innsýn inn í hvað fer fram
hið innra, í hugarheimi okkar og veitir þér aukna
sjálfsþekkingu og  meðvitund.

Efnistök:
  Sjálfið
  Innri raddir
  Hugsanir
  Innsæi og meðvitund

Námskeiðið stendur yfir í þrjá daga frá kl. 10.00 til kl. 11:30.
 Dagana:      7, 14. og  lýkur 21  febrúar 2012

Hámark: Það er hámark 20 manns á námskeiðinu.

Staðsetning:  Krabbameinsfélagið, Skógarhlíð.

Leiðbeinandi: Arnlaug Björg Hálfdanardóttir, hjúkrunarfræðingur (Bachelor)
frá Danmörku þar sem hún hefur starfað til margra ára. 
Er einnig með meistaragráðu í heimspekilegri markþjálfun frá Copenhagen Coaching Center í Kaupmannahöfn.

Skráning á asdisk@krabb.is 

 

                                                 www.krabb.is







mið 8.feb. 2012 12:10 - 13:00

Hádegisfyrirlestur Mikilvægi tómstunda Vanda Sigurgeirsdóttir

Mikilvægi tómstunda.

 

Hvað við veljum að gera í frítímanum  getur haft mikil áhrif á lífsgæði

en það er þó ekki meðfætt að nýta þennan tíma á jákvæðan og uppbyggjandi hátt.

Í erindinu verður fjallað um frítímann og mikilvægi þess að við nýtum hann vel.

Rýnt verður í rannsóknir og kenningar en einnig gefin góð ráð.

 

Vanda Sigurgeirsdóttir er lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

þar sem hún starfar við námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræðum.

Vanda er auk þess knattspyrnuþjálfari og hefur mikla reynslu af tómstundastarfsemi ýmiskonar.

 

mið 8.feb. 2012 17:00 - 18:00

Opið hús hjá stuðningshóp um lungnakrabbamein

Opið hús hjá stuðningshópi fólks sem greinst hefur með krabbamein í lungum og aðstandendum þeirra.

þri 14.feb. 2012 18:00 - 19:00

Ekkjur og Ekklar Kvíði, einmanaleiki, þunglyndi

 

 

Ekkjur og ekklar

Samverustund

Kvíði, einmanaleiki, þunglyndi

 

 

Þriðjudaginn 14. febrúar  kl. 18:00-19.00 er samvera fyrir þá sem

hafa misst maka sinn í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins,

Skógarhlíð 8 Reykjavík. Húsið opnar kl.17:30.

Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur og Ásdís Káradóttir hjúkrunarfræðingur fjalla um kvíða, einmanaleika og þunglyndi.  

Við hvetjum alla sem hafa gengið í gegnum þá erfiðu lífreynslu að missa maka að mæta og taka með vin eða láta þann vita sem gæti nýtt sér samveruna.

 

Boðið upp á kaffi og te.

Starfsfólk Ráðgjafarþjónustu KÍ

Skógarhlíð 8, sími 800 4040 og 540 1912, netfang: 8004040@krabb.is

Nánar um Ráðgjafarþjónustuna: www.krabb.is

 

 

mið 29.feb. 2012

Rabbfundur Stuðningshóps um eggjastokkakrabbamein

Stuðningshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka heldur rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 29. febrúar. Fundurinn hefst kl. 17. Kaffiveitingar.

Konur sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka eru hvattar til að mæta.

mið 28.mar. 2012

Rabbfundur Stuðningshóps um eggjastokkakrabbamein

Stuðningshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka heldur rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík, miðvikudaginn 28. mars. Fundurinn hefst kl. 17. Kaffiveitingar.

Konur sem fengið hafa krabbamein í eggjastokka eru hvattar til að mæta.

 










Skipta um leturstærð


Leit