mið 23.maí 2012 11:30 - 12:00
Qi gong kl. 11.30 - 12.00. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
fös 25.maí 2012
Hannes Bjarni Hannesson, sjúkraþjálfari LSH verður með fyrirlesturinn: Þjálfun og hreyfing. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð Landspítalans fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra sem haldin er í samvinnu við Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins á hverjum föstudegi er nýtt efni rætt.
lau 26.maí 2012
Martin Berkofsky leikur á tónleikum til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands í
Norðurljósi í Hörpu 26. maí. Martin hefur sjálfur háð hetjulega baráttu við krabbamein undanfarin tíu ár og hefur haldið hundruð tónleika til styrktar krabbameinsfélögum. Nú kemur hann til Íslands til að gera slíkt hið sama. Martin mun leika lög eftir Franz Liszt en fáir núlifandi listamenn túlka þennan risa píanósins jafn vel og Martin Berkofsky.
þri 29.maí 2012 13:00 - 15:00
|
Fyrirlestur og vinnustofa með fjölmiðlakonunni Sirrý
þriðjudaginn 29. maí kl.13-15
Sigríður Arnardóttir félags- og fjölmiðlafræðingur og höfundur metsölubókarinnar ,,Laðaðu til þín það góða’’ verður með létta og hvetjandi dagskrá frá kl. 13-15. Fjallað er um samskiptafærni, framkomu okkar hvert við annað, ábyrgð í umræðum, hvaða strauma við sendum frá okkur og hvað við löðum til okkar. Hagnýtar aðferðir til að halda í sjálfstraust og láta drauma sína rætast jafnvel þegar á móti blæs.
Verð kr. 2.900 og innifalið eru heilsuglaðningar og happdrættisvinningar.
Allir velkomnir.
Athugið:nauðsynlegt er að skrá sig
Skráning asdisk@krabb.is
|
www.krabb.is
mið 30.maí 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
fim 31.maí 2012
.jpg)
fim 31.maí 2012
Skráning í Heilsuhlaupið 2012 fer fram á www.hlaup.is eða á skrifstofu Krabbameinsfélagsins í síma 540 1900
mán 4.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
mán 4.jún. 2012
Námskeið í árvekni/gjörhygli
Á undanförnum áratugum hefur svokölluð árvekniþjálfun, stundum kölluð „gjörhygli“ (mindfulness-based stress reduction) verið innleidd sem viðbót við hefðbundna læknisfræðilega og sálfræðilega meðferð. Þar er tvinnað saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að árvekniþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna vellíðan og bætir heilsufar og dregur úr streitu, kvíða og depurð. Áherslan er á að læra að nema staðar „hér og nú“ með stuttum hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun . Þannig má öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.
Námskeiðið er á vegum Sálfræðiþjónustu geðsviðs LSH í samvinnu við Krabbameinsfélagið og er fyrir sjúklinga spítalans og/eða aðstandendur.
Leiðbeinandi: Margrét Bárðardóttir sálfræðingur
Skráning: margreba@landspitali.is eða asdisk@krabb.is
Staður: Ráðgjafaþjónusta Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, 1. hæð. s. 540 1915
Námskeiðið hefst mánudaginn 4.6. kl. 14.30-16.00
Alls 4 skipti og lýkur 25.6. Kostnaður: Kr.4.400
mið 6.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
mán 11.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
mið 13.jún. 2012 - fim 14.jún. 2012
mið 13.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
mán 18.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
mið 20.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
mán 25.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
mið 27.jún. 2012 11:30 - 12:00
Qi gong kl. 11.30 - 12.00. Leiðbeinandi Gunnar Eyjólfsson, ástundun tvisvar í viku. Allir velkomnir og ókeypis ástundun. Boðið upp á hressingu á eftir.
sun 12.ágú. 2012 - fös 17.ágú. 2012
Ekkjur og ekklar
Orlofsdvöl á Löngumýri 12.-17. Ágúst
Eins og undanfarin ár býður fræðslusetur Kirkjunnar á Löngumýri í Skagafirði ekkjum og ekklum til orlofsdvalar dagana 12. -17. ágúst á sumri komandi.
Dagskrá verður með hefðbundnu sniði þar sem gestir eru ekki bundnir af þátttöku, en geta haft hér alla aðstöðu og gert það sem hugurinn býður, enda margir áhugaverðir staðir innan seilingar bæði í Skagafirði og nágrenni.
• Komudagur: Kynning og samvera með presti
• Dagur 2. Létt útivera, gönguferð eða skotist eitthvað bílandi
• Dagur 3. Frjáls dagur
• Dagur 4. Ferðalag um Skagafjörð eða nágrenni
• Dagur 5. Frjáls tími. Grill og kvöldvaka um kvöldið
• Dagur 6. Helgistund í kapellu. Brottför.
Reiknað er með að gestir komi að Löngumýri á milli 18:00 og 19:00 sunnudaginn 12. ágúst en brottför er um hádegi föstudaginn 17. ágúst.
Kostnaður við dvölina er 43.000 á mann og innifalið er fullt fæði og gisting, en ekki skoðunarferðir eða ferðir til og frá staðnum.
Allar nánari upplýsingar veitir staðarhaldari Gunnar Rögnvaldsson í síma 453-8116 861-9804 eða með tölvupósti á netfangið langamyri@kirkjan.is