30.04 2012 - Mánudagur

Umsóknum í Kastað til bata skal skila fyrir 21. maí

Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands, Samhjálp kvenna og styrktaraðilar  bjóða konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í tveggja daga ferð í  miðjum júní í Sogið  og  Úlfljótsvatn.  Markmið þessa boðs er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu - og veiða ef heppnin er með. 
10.01 2012 - Þriðjudagur

Leitarstöð Krabbameinsfélagsins annast ómskoðun varðandi svokallaða PIP brjóstapúða

Velferðarráðuneytið hefur gefið út aðgerðaáætlun heilbrigðisyfirvalda vegna svokallaðra PIP brjóstapúða sem 440 konur hér á landi eru með. Konunum verður boðin ókeypis ómskoðun til að kanna ástand púðanna og er ráðuneytið að semja við Krabbameinsfélagið um að framkvæma skoðuðina.  


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit