13.01 2010

Hvernig getur Qi Gong bætt okkar líðan?

Við minnum á hádegisfyrirlesturinn miðvikudaginn 13. janúar  kl. 12.10
þar sem Gunnar Eyjólfsson fjallar um Qi gong,  Ingibjörg J. Friðbertsdóttir hjúkrunarfræðingur og Jón Þórarinsson segja frá reynslu sinni af Qi gong ástundun. 
 
Á Íslandi er Gunnar Eyjólfsson, leikari frumkvöðull Qi gong iðkunar. Upphaflega kynntist hann Qi gong á námsárum sínum í Bretlandi. Hann hóf að stunda æfingarnar hér á landi með nokkrum félögum sínum eftir að námi lauk. Smá saman fjölgaði í hópnum og  núna stunda 60 - 100 manns Qi gong með reglulegum hætti. Á fundinum mun Gunnar Eyjólfsson tala um  Qi gong. Ingibjörg J. Friðbertsdóttir hjúkrunarfræðingur og Jón Þórarinsson segja frá reynslu sinni af Qi gong ástundun.

Við byrjum á slökun kl. 12:00-12.10, fyrirlestur 12.10-12.40 og umræður til kl. 13.00

Boðið er upp á brauð og kaffi/te. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Aðgangur ókeypis.



 





Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit