Qi -gong: ástundun tvisvar í viku
Grundvöllur qi gong er hugmyndin um orku (qi) og orkuflæði. Megináhersla qi gong er á innri orku mannsins og flæði hennar. Öguð ástund qi gong eflir orkuna og stýrir flæði hennar um líkamann og skapar jafnvægi. Orkunni er beint um líkamann til hreinsunar og heilunar. Ástundun qi gong felur í sér líkamlegar stöður eða hreyfingar, hugleiðslu, einbeitingu og agaða öndun. Qi gong er tvisvar í viku mánudaga og miðvikudaga kl 11:30-11:50.