kl. 17:00-19:00: Samskipti foreldra og barna: Hvernig tala ég við barnið þegar náinn ættingi greinist með krabbamein, Guðrún Oddsdóttir, sálfræðingur.
Guðrún Oddsdóttir sálfræðingur ætlar að taka fyrir þætti eins og að halda áfram að vera foreldri og uppalandi og að láta lífið halda áfram í veikindum. Að tala við börnin um krabbameinið, hvað á að segja þeim, hvernig og hvenær. Að virkja stuðningsnet og dreifa verkefnum. Að takast á við breytingar, ótta og sorg með börnunum. Mismunandi aldur og þroski barna, hvernig bregðast þau við veikindum og hvernig er hægt að hjálpa þeim.