Bleika slaufan 2010
Í októbermánuði verður vakin athygli á krabbameini hjá konum hér á landi eins og gert hefur verið síðan árið 2000, frætt um sjúkdómana og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Þetta er hluti af alþjóðlegu árveknisátaki, að frumkvæði Estée Lauder, en bleik slaufa er tákn átaksins.
Sölufélag Garðyrkjumanna er sérstakur samstarfsaðili Bleiku slaufunnar.
Nú verður lögð áhersla á að selja bleikar slaufur til að auka árvekni um brjóstakrabbamein og styðja við leitarstarf Krabbameinsfélagsins. Bleika slaufan, hönnuð af Sif Jakobs gullsmiði, kostar 1.000 krónur og dagana 1.-15. október verður hægt að kaupa slaufuna hjá eftirtöldum söluaðilum:
Apótekum:
Apótekarinn, Apótekið, Lyf og heilsa, Lyfja, Reykjavíkurapótek og Lyfjaval.
Afgreiðslustöðvum:
Frumherji og Pósturinn.
Verslunum:
Eirberg, Eymundsson, Penninn, Nóatún, Þín Verslun(Miðbúðin, Melabúðin) og Samkaup(Strax, Úrval, Nettó, Kaskó og Hyrnan).
Leigubifreiðum:
Hreyfill.
Kaffihúsum:
Kaffiheimur, Kaffitár og Te & kaffi.
Netverslun:
www.femin.is
Dreifingaraðilar:
Margt Smátt 585-3500 og Parlogis 5900-200.
Þau fyrirtæki sem selja og dreifa slaufunni gera það án endurgjalds eða launa, öll upphæðin rennur til átaksins.
Sértök skartútgáfa af Bleiku slaufunni, verður einnig seld til stuðnings átaki Krabbameinsfélagins eins og í fyrra. Þar er um að ræða hálsmen annars vegar og eyrnalokka hins vegar. Hvort um sig mun kosta á bilinu 9-12 þúsund og verður einungis til sölu hjá Krabbameinsfélaginu, í Saga Boutique (Icelandair) og hjá söluaðilum Sif Jakobs á Íslandi sem eru:
Leonard í Kringlunni, Smáralind og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
1919 Hótel Radisson Sas
Halldór Ólafsson á Akureyri.
Fyrirtæki geta einnig pantað þessa skartútgáfu auk slaufunnar sjálfrar hjá Krabbameinsfélaginu.
Slaufan til vinstri er seld á 1.000 krónur, hálsmenið á kr. 11.500 og eyrnalokkarnir á kr. 9.500.



Hægt er að nálgast upplýsingar um hönnuðinn á
http://www.sifjakobs.com/.