Um slaufuna
Í ár var haldin hönnunarkeppni um Bleiku slaufuna 2010 sem Krabbameinsfélag Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands efndu til.
Ragnheiður I. Margeirsdóttir bar þar sigur úr býtum en hún sótti innblástur í þjóðleg klæði formæðra okkar, íslenska þjóðbúninginn og það sem honum fylgir. Ragnheiður er vöruhönnuður og er með vefsíðuna RIM
Hægt verður að kaupa bleiku slaufuna í tveimur útgáfum hjá samstarfsaðilum Krabbameinsfélags Íslands um land allt og einnig verður viðhafnarútgáfa af slaufunni til sölu hjá Leonard í Kringlunni, Smáralind og Leifsstöð.



Silfurútgáfan - Leonard