Bleika slaufan 2011
Í ár fengum við konur í Suður-Afríku til að perla fyrir okkur slaufuna og tilheyra þær þorpunum Zulufadder.
Flestar konurnar eru ömmur og annast þær margar 12-14 börn hver, því börnin hafa misst foreldra sína úr alnæmi. Í raun hefur heil kynslóð á þessu svæði horfið sökum sjúkdómsins. Með því að kaupa Bleiku slaufuna í ár er fólk því bæði að styrkja Krabbameinsfélag Íslands sem og Zulufadder þorpin og geta nú þessar konur brauðfætt betur þau börn sem eru í umsjá þeirra.
Bleika slaufan er árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands sem snýr að baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Sex hvunndagshetjur tóku þátt í kynningarátakinu og er hægt að skoða myndskeið frá þeim hér
Bleika slaufan 2011 - Video
Hér má sjá myndskeið frá Bleika kvennakvöldinu 2011