Kastað til bata

Kastað til bata – endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini á vegum Krabbameinsfélags Íslands og styrktaraðila.

Kastað til bata er samstarfsverkefni Krabbameinsfélags Íslands, Samhjálpar kvenna og styrktaraðila þar sem konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini er boðið í veiðiferð.

Markmið þessa boðs er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu  og veiða, ef heppnin er með. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og  verður tekið mið af líkamlegri getu þátttakenda. „Að veiða er að vona“. Á staðnum verða einnig félagar úr Samhjálp kvenna, félagi til stuðnings konum sem fengið hafa brjóstakrabbamein og starfsmaður frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Sjá nánar um umsóknir og verkefnið 2012

21.05 2012 - Mánudagur

Fluguhnýtingarkeppni til styrktar Kastað til bata

Í sumar efnir veiðibúiðin Hrygnan til fluguhnýtingarkeppni í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands. Af hverri flugu sem er skilað inn munu 500 krónur renna til Krabbameinsfélagsins og verkefnisins Kastað til bata. Skilafrestur er til 31. ágúst en flugunni skal skilað í lokuðu umslagi merktu höfundarnafni ásamt öðru umslagi merktu höfundarnafni en með réttu nafni höfundar.


30.04 2012 - Mánudagur

Umsóknum í Kastað til bata skal skila fyrir 21. maí

Kastað til bata er endurhæfing sem Krabbameinsfélag Íslands, Samhjálp kvenna og styrktaraðilar  bjóða konum sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini. Farið verður í tveggja daga ferð í  miðjum júní í Sogið  og  Úlfljótsvatn.  Markmið þessa boðs er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu - og veiða ef heppnin er með. 


Krabbameinsfélag Íslands

Krabbameinsfélag Íslands
Skógarhlíð 8
105 Reykjavík
540 1900
krabb@krabb.is

Forstjóri:
Ragnheiður Haraldsdóttir

Formaður:
Sigríður Snæbjörnsdóttir






Skipta um leturstærð


Leit