Leitarstöð

Starfsemi

Krabbameinsfélag Íslands ber ábyrgð á framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar og tekur þátt í fræðslu fyrir almenning um áhættuþætti, forvarnir og einkenni krabbameina. Um leitarstarfið gilda samræmdar starfsreglur sem unnar eru í samráði við Landlæknisembættið. Leitarstöð Krabbameinsfélagsins starfar eftir þjónustusamningi við heilbrigðisráðuneytið.

Á frumurannsóknastofu Leitarstöðvar eru skoðuð öll leghálsstrok sem tekin eru hérlendis. Einnig er innan Leitarstöðvar haldin skrá yfir niðurstöður úr rannsóknum er tengjast leitarstarfinu og konur eru boðaðar í eftirlit og sérskoðanir í samræmi við starfsreglur.

Á Leitarstöðinni eru gerðar legháls- og brjóstaskoðanir; mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 8:30 til kl.15:30. Tímapantanir eru í síma 540 1919 og á netinu.

Tilgangur leitarstarfsins

Tilgangur skipulegrar krabbameinsleitar er að koma í veg fyrir myndun krabbameina með því að finna þau á  forstigi, áður en ífarandi krabbamein hefur myndast, eða að finna sjúkdóm á hulinstigi (frumstigi), þ.e. eftir að ífarandi vöxtur hefur byrjað en áður en einkenni koma fram. Sjá nánar hér

Leit að krabbameinum í leghálsi og brjóstum 

Dæmi um krabbamein sem hægt er að greina á forstigi er leghálskrabbamein en frumubreytingar í slímhúð á leghálsi eru undanfari þess. Brjóstakrabbamein má einnig greina áður en einkenni koma fram með röntgenmyndatöku af brjóstum og fleiri rannsóknum.

Leghálsstrok eru tekin í Leitarstöðinni, hjá kvensjúkdómalæknum, á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Röntgenmyndatökur eru gerðar á Leitarstöðinni í Reykjavík, á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) og með farandtæki í skipulegum skoðunum á vegum Leitarstöðvarinnar á heilsugæslustöðvum utan höfuðborgarsvæðisins.

26.01 2012 - Fimmtudagur

Ísland gæti endað í öðru sæti

Undirskriftasöfnun stendur nú yfir til að vekja athygli á leghálskrabbameini og baráttunni gegn því. Markmiðið er að safna milljón undirskriftum um alla Evrópu en þetta er liður í áskorun Evrópusamtakanna ECCA (European Cervical Cancer Association) sem berjast fyrir því að allar evrópskar konur hafi sama rétt til bestu fáanlegra forvarna gegn leghálskrabbamein.

Nú vantar um 20.000 undirskriftir til að markmiðinu um eina milljón undirskrifta sé náð. Í heild taka 44 þjóðir taka þátt í áskoruninni. Nú þegar hafa rúmlega 8.500 Íslendingar skráð sig á áskorunarlistann en til að komast í annað sæti á evrópska listann vantar rúmlega 700 undirskriftir. Undirskriftasöfnunni lýkur 28. janúar.
25.01 2012 - Miðvikudagur

Mikilvægt að konur mæti í leghálskrabbameinsleit

Kristján Sigurðsson, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins var í viðtali hjá Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í gær, 24. janúar 2012,  í tilefni af því að nú stendur yfir evrópsk átaksvika gegn leghálskrabbameini. 

Í viðtalinu greinir Kristján m.a. frá því að formleg leit að leghálskrabbameini hófst hjá Krabbameinsfélaginu1964. Í kringum 1980 var tekið eftir því að fjöldi nýrra leghálskrabbameina hækkaði allskyndilega á 4 ára tímabili samfara því að allstór hluti kvenna mætti óreglulega eða aldrei til leitar en einnig var raunveruleg hækkun forstigsbreytinga hjá yngri konum er tengist aukinni tíðni HPV veirunnar. Ástæða þess er lífsstílsbreytingar hjá konum en veiran berst með kynsmiti. Um 80% kvenna fá þessa veira einhvern tíma á lífsleiðinni.  Því hefur verið tekið á það ráð að bólusetja allar stúlkur á aldrinum 12 og 13 ára hér á landi. 








Skipta um leturstærð


Leit