Akureyri og nágrenni
Stofnað: 21. nóvember 1952.
Félagsmenn: 1.390.
Stuðningshópur: Norðankraftur, Akureyri og nágrenni. Föndurdagar á Keramikloftinu, Óseyri 18, Akureyri, alla miðvikudaga frá kl. 13-18. Allir hjartanlega velkomnir og alltaf heitt á könnunni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu félagsins (KAON) sem er opin mánudaga og þriðjudaga frá kl. 13-16 s. 461 1470 eða senda tölvupóst á netfangið
kaon@simnet.is
Stjórn kosin á aðalfundi 4. maí 2010:
Formaður: Hlíf Guðmundsdóttir, Illugastöðum, 601 Akureyri 462 2699
hlif@est.isVaraformaður: Friðrik Vagn Guðjónsson, Dalsgerði 4a, 600 Akureyri 462 2519
fridrikv@fsa.isGjaldkeri: Jón Þ. Óskarsson, Illugastöðum, 601 Akureyri 462 2699
hlif@est.isRitari: Klara Arnbjörnsdóttir, Ólafsvegi 34, 625 Ólafsfirði 466 2266
Meðstjórnandi: Guðbjörg Antonsdóttir, Skíðabraut 17, 620 Dalvík 466 1241
gudbjorga@gmail.comMeðstjórnandi: Hólmfríður Kristjánsdóttir, Eyrarlandsvegi 20, 600 Ak. 462 1582
holmfridur@fsa.isMeðstjórnandi: Lilja Sverrisdóttir, Gullbrekku, 601 Akureyri 463 1511
gullbrekka@nett.isMeðstjórnandi: Margrét Steingrímsdóttir, Hjallalundi 7g, 600 Akureyri 896 5351
maggams@akmennt.isMeðstjórnandi: Sigríður Jónsdóttir, Bergi, Svalbarðsströnd, 601 Akureyri 462 1458
marin46@simnet.is
Starfsemi 2010
Skrifstofa.
Starfsmenn: Þorbjörg Ingvadóttir framkvæmdastjóri í 50% starfi og Jóhanna Júlíusdóttir hjúkrunarfræðingur í 40% starfi. Opnunartími á skrifstofunni fyrri hluta ársins var mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 14-17, en frá 1. október var tímanum breytt og er nú opið mánudaga og þriðjudaga frá kl. 13-16. Auk þess sem boðið er upp á viðtalstíma utan opnunartíma á skrifstofu.
Fundir.
Stjórnarfundir. Stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis hélt átta bókaða fundi á árinu 2010.
Aðalfundur KAON var haldinn 4. maí í húsnæði félagsins að Glerárgötu 24. Þær breytingar urðu á stjórn félagsins að Heba Theodórsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu og eru henni færðar þakkir fyrir störf í þágu félagsins á undanförnum árum. Í hennar stað var kjörin Lilja Sverrisdóttir.
Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands var haldinn laugardaginn 8. maí í Skógarhlíð 8. Fulltrúi KAON á aðalfundinum var Friðrik Vagn Guðjónsson, auk þess sem Þorbjörg Ingvadóttir og Jóhanna Júlíusdóttir starfsmenn félagsins sátu fundinn.
Samráðsfundir. Starfsmenn fóru á samráðsfund sem haldinn var 7. maí.
Formannafundur Krabbameinsfélags Íslands var haldinn í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði 2. október. Fulltrúar KAON á þeim fundi voru Hlíf Guðmundsdóttir og Jón Þ. Óskarsson.
Aðrir fundir. Starfsmenn sóttu fundi með ýmsum aðilum á árinu. Má þar t.d. nefna fundi með líknar- og stuðningsteymi FSA og fundi með starfsmönnum og formönnum stéttarfélaga á félagssvæði KAON.
Fyrirlestar, námskeið og önnur starfsemi.
Námskeið fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra var haldið í húsnæði félagsins að Glerárgötu 24. Það hófst 14. apríl og því lauk 5. maí. Eftirtaldir fyrirlesarar voru með okkur að þessu sinni: Friðrik Yngvason lyflæknir: Krabbamein, lækningaúrræði, meðferð. Þorbjörg Jónsdóttir verkjahjúkrunar¬fræðingur: Verkir og verkjameðferð. Valgerður Bjarnadóttir félagsráðgjafi: Sjálfstyrking. Elín S. Harðardóttir næringarfræðingur: Hollt mataræði – bjargráð í næringarvanda. Guðrún Eggertsdóttir sjúkrahúsprestur: Sálgæsla. María Björk Ingvadóttir félagsráðgjafi: Félagsleg réttindi o.fl. Ingvar Þóroddsson endurhæfingarlæknir: Krabbamein og endurhæfing. Námskeiðið var þátttakendum að kostnaðarlausu og fékk KAON sérstakan verkefnisstyrk frá Krabbameinsfélagi Íslands upp í kostnaðinn við þetta verkefni. Skráðir þátttakendur á námskeiðið voru 20 að þessu sinni og voru flestir frá Akureyri, en einnig einstaklingar búsettir annars staðar á félagssvæðinu.
Fræðsla.
Starfsmenn hafa aðstoðað bæði hjúkrunarnema, sjúkraliða og aðra námsmenn bæði með formlegum hætti þ.e. viðtölum og upplýsingagjöf ýmiss konar, auk þess sem brjóstavestið hefur verið lánað í tengslum við fræðslu sem skólahjúkrunarfræðingar hafa verið með í skólum. Í byrjun febrúar var haldið matreiðslunámskeið sem byggir á bókinni „Bragð í baráttunni“. Unnur „Lukka“ Pálsdóttir sá um það, auk þess sem Hulda og Ásta frá Krafti komu og sögðu frá starfsemi Krafts og nýútkominni bók sem inniheldur dagbókarfærslur krabbameinssjúklings. Það var fullt út úr dyrum og mikil ánægja með fræðsluna.
Námskeið í hugrænni atferlismeðferð fór fram dagana 6. og 9. september og leiðbeinandi var Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands. Þátttakendur voru tíu og tókst námskeiðið í alla staði mjög vel.
Samhjálp kvenna.
Margrét Steingrímsdóttir meðstjórnandi í stjórn KAON er í forsvari fyrir Samhjálparkonur á Akureyri og hefur sótt námskeið á vegum Samhjálpar sem gera henni kleift að hitta konur sem greinast með brjóstakrabbamein og spjalla við þær.
Bleikur október. Akureyrarkirkja var lýst upp í bleikum lit í október og sáu Ólafur Tr. Kjartansson og Sigurður Ólafsson rafvirkjar hjá Ljósgjafanum um framkvæmdina.
Stómasamtökin hafa haldið fundi sína í húsnæði félagsins eins og undanfarin ár.
Norðankraftur / Keramikloftið.
Norðankraftur hefur ekki verið með formlega fundi, en á hverjum miðvikudegi frá kl. 13-18 hittist fólk á Keramikloftinu þar sem er kaffi á könnunni og boðið uppá leiðsögn í alls konar föndri. Þar er hægt að vinna með gler, mosaik, ullarþæfingu o.fl. Þessi samvera hefur gefist vel og hefur verið mjög vel sótt. Í lok ársins ákvað stjórnin að styðja við þessa mikilvægu grasrótarstarfsemi með fjárframlagi að upphæð 150.000 kr. þar sem tenging við félagið hefur frá upphafi verið sterk og sú starfsemi sem þarna er, mjög mikilvæg að mati stjórnar KAON. Hjördís Áskelsdóttir eigandi Keramikloftsins ýtti þessari starfsemi úr vör af sinni einstöku bjartsýni og óbilandi trú á verkefninu. Hugmyndin kom fram í tengslum við námskeið hjá KAON sem Hjördís sótti, og þar sem ekki er aðstaða í húsnæði félagsins til að bjóða upp á starfsemi sem þessa, þá bauð hún fram húsnæði sitt þar sem hún hafði rekið keramikverkstæði um árabil. Eftir lát hennar ákvað fjölskylda hennar að halda þessari mikilvægu starfsemi áfram og vill stjórn KAON koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra fyrir óeigingjarnt starf í þágu einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein.
Líf og loft eru samtök lungnasjúklinga.
Þau hafa fundað reglulega tvisvar í mánuði í húsnæði okkar.
Íbúðir Krabbameinsfélagsins í Reykjavík.
Kostnaður KAON vegna dvalar sjúklinga í íbúðum félagsins á Rauðarárstíg og á Sjúkrahótelinu hefur aukist jafnt og þétt. Árið 2010 greiddi félagið 1.242.550 kr. vegna 866 gistinátta. Þetta er umtalsverð hækkun frá árinu á undan, en þá greiddi félagið 864.00 kr. vegna 652 gistinátta. Fram til október 2010 hefur félagið greitt þessa reikninga að fullu og eina skilyrðið hefur verið að viðkomandi greiði (eða hafi greitt) árgjald til félagsins. Á stjórnarfundi í september var tekin sú ákvörðun að greiða 50% hlut í reikningum vegna dvalar í íbúðunum. Þessi ákvörðun verður endurskoðuð reglulega og ef aðstæður breytast mun stjórn félagsins taka ákvörðun í samræmi við það. Jafnframt var starfsmönnum falið að ræða við stéttarfélög á svæðinu um hugsanlega aðskomu þeirra í greiðsluþátttöku vegna sinna félagsmanna.
Viðtöl og stuðningur við skjólstæðinga.
Skráð eru 139 viðtöl á skrifstofu félagsins. Þetta er aukning frá árinu áður þegar skráð viðtöl voru um 84. Viðtöl í síma eru ekki talin með. Rétt þykir að geta þess að skrifstofan er opin að meðaltali 8 tíma á viku og lokað er yfir sumarleyfistíma frá miðjum júní og fram undir lok ágúst.
Fjáraflanir.
Minningarkort.
Sala á minningarkortum er svipuð og undanfarin ár og er þetta ein öflugasta tekjulind félagsins sem er stöðugt í gangi, fyrir utan árgjöld. Fram til þessa fer þessi sala nær eingöngu fram í bóka- og blómabúðum á félagssvæðinu, auk þess sem nokkrir einstaklingar utan Akureyrar selja kortin heimanað frá sér.
Mottumars. KAON tók þátt í sölu á „skeggpinnum“ sem fram fór 6. mars. Ákveðið var að fá til liðs við okkur Ólaf Tr.Kjartansson til að sjá um undirbúning og framkvæmd sölunnar. Selt var á sex stöðum á Akureyri og fimm stöðum utan Akureyrar. Salan gekk mjög vel og seldust 1.934 „skegg“ og hlutur KAON vegna átaksins var tæplega 1.4 milljónir króna. Vill stjórn félagsins sérstaklega þakka Ólafi fyrir hans vinnu við að ná þessum frábæra árangri.
Árgjöld.
Það eru 1.390 skráðir styrktarfélagar í Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Þessir einstaklingar eru máttarstólpar félagsins og í raun, er þeirra styrkur forsenda þess að hægt sé að halda starfsemi félagsins gangandi. Því miður er lítil fjölgun styrktarfélaga og má velta því fyrir sér hvernig aðildarfélögin eiga að fara að því að fjölga þeim, sérstaklega í ljósi þess að söfnun á „Velunnurum Krabbameinsfélagsins“ er í gangi um allt land allt árið um kring og við virðumst því vera komin í samkeppni hvert við annað. Þessi mál þarf að taka upp og ræða til þess að viðunandi niðurstaða fáist fyrir alla.
Styrkir og gjafir.
Krabbameinsfélag Íslands styrkir félagið með því að greiða helming af launakostnaði. Kvenfélag Hörgdæla færði félaginu 400.000 kr. gjöf til minningar um Hólmfríði Helgadóttur og Sveinfríði Jóhannsdóttur. Kvenfélagið Tilraun í Svarfaðardal styrkti félagið um 100.000 kr. Kiwanisklúbburinn Grímur í Grímsey gaf 100.000 kr. í tengslum við Mottumars-átakið. Lionsklúbbur Akureyrar styrkti félagið með 75.000 kr. gjöf í lok desember. Í tilefni af 80 ára afmæli Ingva Rafns Jóhannssonar fékk félagið tæplega 174.00 kr. Eining-Iðja styrkti félagið með 300.000 kr. framlagi í ár, sem ætlað er til að ganga upp í greiðslu vegna dvalar þeirra félagsmanna í íbúðum félagsins í Reykjavík. Svava Jónsdóttir færði okkur peninga sem safnast hafa í vetur hjá eldri borgurum, sem æfa línudans. Þrjár ungar stúlkur, Dagný, Ebba og Diljá, komu og færðu okkur peninga sem þær höfðu safnað með því að selja „perl“ sem þær höfðu búið til. Félagið fékk auk þessa, minningargjafir þar sem gefendur vildu ekki láta nafns síns getið. Fyrirtækið Þrif og ræstivörur hefur styrkt félagið undanfarin ár með því að sjá um þrif í húsnæði okkar og færum við þeim bestu þakkir fyrir. Öll þessi framlög til félagsins eru þökkuð af alhug.
Húsnæði.
Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur í mörg ár leigt 110 fermetra húsnæði að Glerárgötu 24. Um er að ræða tvö herbergi og lítinn sal sem rúmar u.þ.b. 20-25 manns í sæti. Þessi aðstaða er mjög góð og nýtist salurinn vel fyrir fundi á vegum félagsins. Þeir stuðningshópar sem starfa á Akureyri hafa í gegnum tíðina haft afnot af þessu húsnæði fyrir alla sína fundi og fyrirlestra án endurgjalds. Hægt er að fá lánaðar bækur og greinar auk þess sem margir líta við á skrifstofu félagsins til að spjalla og fá upplýsingar um þjónustu sem í boði er.
Í húsnæði KAON er herbergi með svefnaðstöðu og hvíldarstól auk lítillar setustofu þar sem er sjónvarp og vídeótæki. Þessi aðstaða hefur verið notuð af einstaklingum sem koma utan af landi til lyfjagjafar á Sjúkrahúsinu á Akureyri og/eða aðstandendum þeirra og hefur verið þeim að kostnaðarlausu.
Þorbjörg Ingvadóttir.