Austfirðir

Krabbameinsfélag Austfjarða 

Stofnað: 21. apríl 1970.
Félagsmenn: 492.

Stjórn kosin á aðalfundi 29. apríl 2010:

Formaður:   Álfheiður Hjaltadóttir, Ásgerði 6, 730 Reyðarfirði   898 1530   kriskris@simnet.is
Ritari:   Sigrún Steinsdóttir, Dölum 1, 750 Fáskrúðsfirði     860 1936
Gjaldkeri:   Alrún Kristmannsdóttir, Strandgötu 47, 735 Eskifirði   476 1279
Meðstjórnandi:   Björn Magnússon, Hrafnsmýri 2, 740 Neskaupstað   477 1765
Meðstjórnandi:   Solveig Friðriksdóttir, Hólalandi 18, 755 Stöðvarfirði   865 8184
Meðstjórnandi:   Unnur Björgvinsdóttir, Sæbergi 13, 760 Breiðdalsvík   475 6738
Meðstjórnandi:   Þorgeir Sæberg, Stekkjarbrekku 4, 730 Reyðarfirði   894 5499
 

Starfsemi 2010-2011

Aðalfundur.

Fjörutíu ára afmælisfundur var haldinn í Safnaðarheimili Norðfjarðarkirkju 29. apríl 2010. Fundarmenn voru 20. Aðalgestur fundarins var Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka) og kynnti hún bókina „Bragð í baráttunni“ og ræddi um hráefni í matargerð sem talið er að geti unnið gegn myndun krabbameina.

Formannafundur

Formannafundinn í Hveragerði í október sem átti að vera í Vestmanannaeyjum (gengur betur næst með Landeyjarhöfn) sóttu Álfheiður Hjaltadóttir, formaður og Anna Heiða Gunnarsdóttir starfsmaður. Góður fundur og góð samstaða milli félaga og starfsfólksins í Skógarhlíð.

Fjáröflun

Fjáröflun félagsins á árinu var hefðbundin, innheimta félagsgjalda og sala minningarkorta, en það eru einstaklingar ásamt Íslandspósti á hverjum stað sem sjá um þá mikilvægu þjónustu. Í stað penna voru seldar bílarúðusköfur og mæltist það vel fyrir. Salan gekk vel en um hana sáu elstu nemendur grunnskólanna á Austfjörðum. Sala á nælum í Mottumars gekk sæmilega en ekki er áhugi fyrir að kaupa nælurnar ár eftir ár og heldur vilja menn taka þátt í áskorunum og áheitasöfnun á netinu.

Hvíldarhelgi á Eiðum.

Helgina 27.-29. ágúst 2010 var árleg skemmti- og hvíldarhelgi á Eiðum fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Fullbókað var eða rúmlega 20 þáttakendur ásamt leiðbeinendum og starfsfólki. Þetta var einstaklega vel heppnað og ekki síst vegna komu félaga úr Krafti, en þeir fengu ferðastyrk úr sínu félagi. Dagskráin var fjölbreytt að vanda, fræðsla, útivera, skemmtidagskrá, kyrrðarstundir og síðast og ekki síst góður matur. Margrét Perla Kolka var með einkatíma í músíkþerapíu alla helgina. Helgistund var í Eiðakirkju á sunnudeginum þar sem séra Hólmgrímur Elís Bragason prédikaði.

Bleik lýsing.

Bleiksárfoss á Eskifirði fær alltaf í október að vera bleikur. Einnig var Reyðarfjarðakirkja og Fjarðaál við Hraun með bleika lýsingu.

Styrkir.

Greidd er húsaleiga fyrir einstaklinga af félagssvæðinu sem dvelja í íbúðum Krabbameinsfélagsins við Rauðarárstíg og á Rauðakrosshótelinu.

Heimsóknir.

Erna Magnúsdóttir frá Ljósinu kom í febrúar og hélt góða fundi á Reyðarfirði og Egilsstöum, kynnti fyrir okkur starfsemi Ljósins og endurhæfingu út frá hugmyndafræði iðjuþjálfunnar. Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands heimsótti félögin á Austurlandi í apríl 2011 og var það mjög gagnleg og ánægjuleg heimsókn.

Fyrirlestrar.

Hafin er sjö kvölda fyrirlestraröð þar sem fagaðilar, hver á sínu sviði, sjá um framsögu og stjórna umræðum á eftir. 1. Hvernig bregst ég við? 2. Þarf ég að rækta sálarlífið? 3. Félagsleg réttindi. 4. Börnin og fjölskyldan. 5. Heilsa og næring. 6. Mikilvægi hreyfingar. 7. Stuðningshópar. Hvað tekur við?

Músikþerapia

Músikþerapia er meðferð þar sem eiginleikar tónlistar eru notaðir til að vinna með líkama og sál. Margrét Perla Kolka musikþerapisti var í vetur með einstaklingstíma fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra og nú í samstarfi við Virk, starfsendurhæfingasjóð. Alcoa-Fjarðaál veitti styrk í þetta verkefni.

Þjónustuskrifstofan

Þjónustuskrifstofan flutti að Búðareyri 15 og hefur nú í fyrsta skipti aðstöðu sem ekki þarf að deila með öðrum.

 Álfheiður Hjaltadóttir og Anna Heiða Gunnarsdóttir. 

06.10 2011 - Fimmtudagur

Alcoa starfsmenn hlaupa til góðs og lýsa upp hús

Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði tekur mikinn þátt í Bleika slaufu átaki Krabbameinsfélagsins. Þau hafa nú lýst upp Sómastaði, súrálsfæribandið og tvö mastur í rafveitu, austan við verksmiðjuna. Laugardaginn 8. október ætla starfsmenn Fjarðaáls að fara í bleikt boðhlaup. 
26.08 2011 - Föstudagur

Orlofshelgi á Eiðum

Orlofshelgi fyrir krabbameinsgreinda og maka eða vin í Kirkjumiðstöð Austurlands Eiðum 26. – 29. ágúst 2011.
Þema helgarinnar er endurhæfing.

Þátttökugjald er kr. 2.500.-

Upplýsingar gefa Álfheiður Hjaltadóttir í síma 898 1530 og Anna Heiða Gunnarsdóttir 869 0810.









Skipta um leturstærð


Leit