Skagafjörður
Krabbameinsfélag Skagafjarðar
Stofnað: 12. júní 1966.
Félagsmenn: Um 420.
Stuðningshópur: Dugur, Sauðárkróki, Skagafirði. Fundir mánaðarlega. Gönguhópur starfandi. Formaður María Reykdal, sími 863 6039.
Stjórn kosin á aðalfundi 1. maí 2010:
Formaður: Þorsteinn Þorsteinsson, Dalatúni 10, 550 Sauðárkróki 453 5707
thorsti@simnet.isVaraformaður: Dalla Þórðardóttir, Miklabæ, 560 Varmahlíð 453 8276
Ritari: Sara Valdimarsdóttir, Frostastöðum, 560 Varmahlíð 453 8247
Gjaldkeri: Ingibjörg Sigfúsdóttir, Álftagerði, 560 Varmahlíð 453 8169
Meðstjórnandi: Guðrún H. Guðmundsdóttir
Meðstjórnandi: Ólafur Sveinsson, Víðihlíð 14, 550 Sauðárkróki 453 5275
Starfsemi 2010-2011
Starfsemi hefur verið svipuð og áður. Skrifstofan hefur ekki verið mikið opin vegna anna Maríu Reykdal í námi en hún hefur verið með símatíma og verið á skrifstofunni eftir föngum. Eftir áramót hefur það aukist því María hefur nú lokið námi og hefur hafið störf í Skagafirði sem sálfræðingur.
Auk aðalfundar var haldinn einn stjórnarfundur. Félagið sendi fulltrúa á aðalfund og formannafund Krabbameinsfélags Íslands.
Orlofsdvalir á Löngumýri síðastliðið sumar voru studdar fjárhagslega, ein fyrir krabbameinssjúka og ein fyrir ekkjur og ekkla. Góð þátttaka, mikil ánægja með dvölina. Félagið greiðir leigu fyrir fólk héðan sem dvelur í íbúðum Krabbameinsfélagsins eða á Rauðakrosshótelinu í tengslum við krabbameinsmeðferð.
Glaumbæjarkirkja og Heilbrigðisstofnunin voru lýst bleik í október og birt grein um októberátakið í héraðsfréttablaðinu Feyki.
Námskeið fyrir krabbameinssjúka og aðstandendur var haldið frá 26. febrúar til 2. apríl. Þátttakendur voru 14 sjúklingar og aðstandendur. Dugur hefur verið með samverustundir einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, mæting 10-25 manns.
Mottumars: Seldar voru nælur á nokkrum sölustöðum og birt grein í Feyki.
María hefur verið með nokkur
stuðningsviðtöl síma og á stofu. Krabbameinsfélagið greiðir niður fimm viðtöl sálfræðings fyrir sjúkling eða/og aðstandanda og hafa tveir aðilar nýtt sér það, það sem af er árinu. Sjúklingur sem þurfti í langa meðferð til Svíþjóðar og hans fjölskylda voru studd fjárhagslega.
María hefur tekið þátt í vinnu vegna endurhönnunar á heimsíðu Krabbameinsfélagsins.
Þorsteinn Þorsteinsson.