Snæfellsnes
Krabbameinsfélag Snæfellsness
Stofnað: 27. september 2005.
Félagsmenn: 84.
Stuðningshópur: Von, stuðningshópur Krabbameinsfélags Snæfellsness, Borgarbraut 2, Grundarfirði. Upplýsingar gefur Margrét Hjálmarsdóttir, sími 864 1767.
Stjórn kosin á aðalfundi 7. apríl 2011:
Formaður: Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Hellnum, 356 Snæfellsbæ, farsími 866 5237
bros88@simnet.is Gjaldkeri: Magnea Sigurbj. Kristjánsdóttir, Fornu-Fróðá, 356 Snæfellsbæ, farsími 864 1363
sibbakrist@simnet.isRitari: Guðmunda H. Þórðardóttir, Bárðarási 1, 360 Snæfellsbæ, farsími 8974241
munda@gsnb.isMeðstjórnandi: Hjördís Vilhjálmsdóttir, Grundargötu 72, 350 Grundarfirði, sími 438 6667
hjordisvilhjalms@gmail.comMeðstjórnandi: Margrét Hjálmarsdóttir, Fagurhólstúni 14, 350 Grundarfirði, farsími 864 1767
maggahj@simnet.is Starfsemi 2011-2012
Aðalfundur Krabbameinsfélags Snæfellsness var haldinn 7. apríl 2011 í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði.
Starf síðasta árs hefur verið með sama sniði og áður, fyrst og fremst gegnum netið þar sem allar helstu ákvarðanir eru teknar. Venjulegir stjórnarfundir eru afar sjaldgæfir þar sem stjórnarmeðlimir búa dreift um Snæfellsnesið og víðar.
Hefðbundin fjáröflun aðildarfélaga, svokölluð pennasala fór fram í september. Október skein bleikur um allar sveitir meðan seldar voru bleikar slaufur fyrir Krabbameinsfélag Íslands. Í bæjum og út um sveitir fréttist af myndarlegum mottuvexti í mars. Sala minningarkorta í nafni félagsins heldur áfram að vera góð. Auk þess var keyptur myndarlegur lager af englum sem selst hafa gífurlega vel.
Stuðningshópurinn Von í Grundarfirði hefur eins og undanfarin sjö ár haldið sína mánaðarlegu fundi fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.
Sjóður félagsins er til vitnis um tryggan stuðning félagsmanna ásamt góðum viðtökum Snæfellinga við fjáröflunum félagsins.
Að venju tók félagið þátt í dvalarkostnaði vegna lækninga fjarri heimabyggð. Engin umsókn barst um aðra styrki.
Sveinbjörg Eyvindsdóttir.